Örnámskeið
Fyrir foreldra sem eiga unglinga í fikti og neyslu: fræðsla og ráð í þrjú skipti. Rúna Ágústsdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafi er með umsjón.
Sjálfstyrking fyrir foreldra
Markmið námskeiðsins er að valdefla foreldra og styðja þá í uppeldishlutverkinu. Það er fyrir foreldra sem eiga börn og unglinga með samskiptavanda og þá sem vilja styrkja sig í uppeldishlutverkinu. Unnið er út frá lausnamiðaðri nálgun („solution focused therapy“). Sex vikna námskeið; Berglind Gunnarsdóttir Strandberg, cand. í uppeldissálfræði, er með umsjón.