Unglingsárin eru tími breytinga og það er eðlilegt að áhugamál breytist. En þegar margt breytist í einu, áhugi, einkunnir og skap, er gott að skoða hvað liggur að baki.
Reyndu að finna tíma með honum sem snýst ekki um vandann: bíltúr, matur, eitthvað sem hann hefur gaman af. Þannig skapast oft rými fyrir samtal. Hafðu líka samband við skólann og þjálfarann; þau sjá hann í öðrum aðstæðum.
Ef þú hefur áhyggjur af líðan hans getur sálfræði- og uppeldisráðgjöf Foreldrahúss hjálpað, bæði honum og ykkur foreldrunum.