Foreldrasíminn er opinn allan sólarhringinn, allan sólarhringinn581 1799EnglishPolski

Orðasafn

Orð og heiti sem foreldrar rekast á, með stuttum skýringum. Leitaðu að orði eða öðru heiti.

18 orð

Mynd: DMTrott, CC BY-SA 4.0, skorinAmfetamínÖrvandi efni sem eykur orku og vöku. Áhrifin geta varað lengi og þeim fylgir oft svefnleysi og kvíði.spítthvíttMynd: Paolo Neo, almenningseignÁfengiAlgengasta vímuefnið. Áfengi hefur áhrif á dómgreind, viðbrögð og skap, og unglingar eru viðkvæmari fyrir áhrifum þess en fullorðnir.búslandiheimabruggMynd: DEA, almenningseignFalsaðar töflurTöflur sem líta út eins og þekkt lyf, til dæmis Oxycontin eða Xanax, en eru framleiddar ólöglega. Þær geta innihaldið fentanýl eða önnur mjög sterk efni og ein tafla getur verið banvæn. Engin leið er að sjá muninn.falsað oxýfalsað xanaxM30fentanýlnítasenMynd: DEA, almenningseignKannabisUnnið úr hampplöntunni. Virka efnið THC hefur áhrif á skynjun, minni og einbeitingu.grashassjónaskunkMynd: Elsa Olofsson, CC BY 2.0, skorinKannabissælgætiGúmmíbangsar, sælgæti, kökur eða súkkulaði með THC. Lítur út eins og venjulegt nammi, en áhrifin koma seint, oft eftir eina til tvær klukkustundir, svo hætta er á að borða of mikið.gúmmíbangsarkannabisgúmmínammikökursúkkulaðiediblesHHCMynd: Wikimedia Commons, CC0KetamínDeyfilyf sem er notað sem vímuefni, oftast hvítt duft sem er tekið í nefið. Veldur sljóleika og tilfinningu um að vera utan við líkamann. Regluleg notkun getur skaðað þvagblöðruna alvarlega. Lögreglan hefur lagt hald á mun meira af því síðustu ár.ketKspecial KkittyMynd: DEA, almenningseignKókaínÖrvandi efni sem veldur stuttri vellíðan en mikilli löngun í meira.kóksnjórMynd: Wikimedia Commons, almenningseignLSDSterkt ofskynjunarefni, oft á litlum pappírsbútum (frímerkjum) sem eru settir á tunguna. Áhrifin vara í 8 til 12 klukkustundir og geta valdið ofsahræðslu og ranghugmyndum.sýrafrímerkipappacidtrippMynd: DEA, almenningseignMDMAÖrvandi efni, oft í töfluformi, tengt skemmtunum. Hætta er á ofhitnun og vökvatapi.e-pillaalsælamollyMynd: Wikimedia Commons, CC0NikótínÁvanabindandi efni í tóbaki, rafrettum og nikótínpúðum. Unglingar verða fljótt háðir því.veiprafrettapúðisnusmunntóbakneftóbakZynVeloMynd: Scienceman71, CC BY-SA 4.0, skorinOfskynjunarsveppirSveppir sem innihalda psilocybin og valda ofskynjunum. Trjónupeðla vex villt á Íslandi á haustin. Áhrifin eru ófyrirsjáanleg og geta valdið mikilli hræðslu, ranghugmyndum og slysum.sveppirtöfrasveppirtrjónupeðlapsilocybinshroomsMynd: Wikimedia Commons, CC0ÓpíóíðarSterk verkjalyf og skyld efni. Mjög ávanabindandi og hætta á öndunarstoppi við ofskömmtun.oxýOCcontalgenfentanýlParkódínTramólNobliganMynd: DEA, almenningseignRóandi lyfLyf við kvíða og svefnleysi sem geta verið ávanabindandi og hættuleg með áfengi.benzóxanaxRivotrilLyricapregabalínMynd: The Drug Users Bible, CC BY 2.0, skorinSniff og hláturgasGas eða gufur sem er andað að sér til að komast í stutta vímu, til dæmis hláturgas úr blöðrum, kveikjaragas eða lím. Litlir gaskútar og blöðrur geta verið vísbending. Getur valdið súrefnisskorti og köfnun, og taugaskaða við mikla notkun.hláturgasglaðloftblöðrurgaskútarrjómagaskveikjaragaslímsniffMynd: USMC, almenningseignSpiceTilbúin efni sem líkja eftir kannabis en eru oft margfalt sterkari og óútreiknanleg. Spice hefur fundist í veipvökva hjá íslenskum unglingum; það er nánast lyktarlaust og sést ekki utan á rafrettunni. Getur valdið krömpum, ofsahræðslu og meðvitundarleysi.tilbúin kannabínóíðspice-veipgervikannabisK2Mynd: U.S. Customs and Border Protection, almenningseignSterarHormónalyf sem sumir unglingar, oftast strákar, nota til að byggja upp vöðva hraðar. Geta valdið skapsveiflum, bólum, hormónatruflunum og hjartavanda.vefaukandi sterartestósteróngearsprauturMynd: Elsa Olofsson, CC BY 2.0, skorinTHC-veipRafretta eða veip-penni með olíu úr kannabis. Lítur út eins og venjuleg rafretta og lyktar lítið, svo erfitt er að taka eftir henni.kannabisveipTHC-penniTHC-olíahylkiHHCMynd: Wikimedia Commons, CC0Örvandi lyfLyf við ADHD sem sumir taka án lyfseðils til að vaka, læra eða komast í vímu. Þau ganga oft milli vina sem fá þau ávísuð. Misnotkun getur valdið kvíða, svefnleysi og hjartsláttartruflunum.ADHD-lyfRítalínConcertaElvanselærdómspillur