Foreldrasíminn er opinn allan sólarhringinn, allan sólarhringinn581 1799EnglishPolski

Um okkur

Fyrir fjölskyldur í vanda í 40 ár.

Foreldrasamtökin Vímulaus æska eru landssamtök, formlega stofnuð í Háskólabíói 20. september 1986. Samtökin reka Foreldrahús, sem var stofnað 1999 og er til húsa að Ármúla 42, 108 Reykjavík. Kjarnastarfsemin er ráðgjöf, meðferð og fræðsla.

Þar er starfrækt fjölskylduráðgjöf, foreldrahópar og foreldranámskeið, og stuðningsúrræðið VERA fyrir unglinga í vímuefnavanda. Utan opnunartíma tekur Foreldrasíminn við, þar sem fagaðili veitir foreldrum ráðgjöf og stuðning, en hann hefur verið opinn linnulaust frá stofnun samtakanna árið 1986.

Markmiðin okkar

  • Að efla forvarnir með þátttöku og stuðningi allra foreldra í landinu
  • Að vinna að viðhorfsbreytingu í samfélaginu gegn umburðarlyndi gagnvart unglingadrykkju og neyslu annarra vímuefna
  • Að styðja og efla foreldra sem eiga börn í vanda
  • Að tryggja hagsmunagæslu þegar unnið er að málefnum foreldra og barna
  • Að miðla stuðningi milli foreldra í svipaðri aðstöðu
  • Að bjóða upp á faglega fjölskylduráðgjöf
  • Að beita sér opinberlega fyrir úrbótum í vímuefnamálum ungmenna

Stjórnin

Foreldrahús eru félagasamtök og er stjórn samtakanna skipuð fólki úr atvinnulífinu.

Steinunn Hrafnsdóttir

Stjórnarformaður

steinhra@hi.is

Guðlaug Unnur Þorsteinsdóttir

Stjórnarmeðlimur

gudlaug2@gmail.com

Ólafur Gunnarsson

Stjórnarmeðlimur

olafurgunnarsson813@gmail.com

Samstarf

Foreldrahús er rekið með styrkjum frá Reykjavíkurborg, Lýðheilsusjóði og samningi við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.