VERA er heildstætt langtíma meðferðarúrræði fyrir börn og unglinga með tilfinninga- og hegðunarvanda og fyrir unglinga í fikti og neyslu. Hægt er að koma beint án tilvísunar og nafnleynd ríkir fyrir þá sem eru í úrræðinu.
Úrræðið varir í 3 til 12 mánuði eftir þörfum hvers og eins. Unnið er jafnt með unglingi og foreldrum, sem mæta reglulega í viðtöl yfir tímann.
Þegar um samstarf við barnavernd sveitarfélaga er að ræða koma foreldrar og unglingur með tilvísun og þjónustan er þá styrkt af viðkomandi sveitarfélagi.